Fréttir | 07. maí 2021 - kl. 20:58
Austur-Húnvetningar eiga fulltrúa í úrslitum Söngkeppni Samfés á sunnudaginn

Félagsmiðstöðin Skjólið á Blönduósi og Félagsmiðstöðin Undirheimar á Skagaströnd eiga fulltrúa í úrslitum Söngkeppni Samfés sem haldin verður í beinni útsendingu á RÚV sunnudaginn 9. maí og hefst kl. 15:00. Keppandi Skjólsins verður Inga Rós Suska og keppendur Undirheima verða þær Sóley Sif Jónsdóttir og Steinunn Kristín Valtýsdóttir.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga