Dalsfoss í Vatnsdalsá.
Dalsfoss í Vatnsdalsá.
Fréttir | 07. maí 2021 - kl. 21:59
Íbúum Húnavatnhrepps hefur fjölgað um 8 talsins frá 1. desember 2020

Íbúum Norðurlands vestra hefur fækkun örlítið frá 1. desember 2020 til 1. maí 2021 eða um 10 manns eða 0,1%. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur íbúum fjögað og fækkað til skiptis á þessu tímabili.

Íbúum Húnavatnshrepps hefur fjölgað um 8 eða 2,2% og eru 377. Íbúum Skagabyggðar hefur fjölgað um 3 eða 3,3% og eru 95. Íbúum í Blönduósbæ hefur fækkað um 2 eða 0,2%, eru 955 og íbúum Sveitarfélagsins Skagastrandar hefur fækkað um 12 eða 2,5%, eru 463.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga