Mynd: AST Norðurland vestra
Mynd: AST Norðurland vestra
Fréttir | 08. maí 2021 - kl. 12:09
Fjögur kórónuveirusmit í Skagafirði

Fjögur kórónuveirusmit greindust í Skagafirði í gær og var einn þeirra smituðu utan sóttkvíar. Unnið er að smitrakningu og er af þeim sökum töluverður fjöldi kominn í úrvinnslusóttkví. Niðurstöður úr skimunum ættu að liggja fyrir í kvöld eða í fyrramálið, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra. Nú eru 72 í sóttkví í Skagafirði, þar af 58 á Sauðárkróki.

Í tilkynningunni segir: „Aðgerðastjórnin vill minna íbúa Norðurlands vestra á að gæta allra persónulegra sóttvarna og minnast þess einnig að stríðið við Covid-19 er ekki liðið hjá, veiran er ennþá úti í samfélaginu. Við þurfum öll að vera á varðbergi. Það er aldrei of oft ítrekað að finni einstaklingar fyrir einkennum, fari þeir ekki á meðal fólks heldur fari í skimun. Almannavarnir byrja heima.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga