Mynd: skagastrond.is
Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 11. maí 2021 - kl. 09:57
Vettvangsliðar útskrifaðir á Skagaströnd

Um síðustu helgi þreyttu átta Skagstrendingar próf og útskrifuðust sem vettvangsliðar eftir 40 stunda námskeið frá Sjúkraflutningaskólanum á Akureyri. Skagstrendingar eiga því nú átta fullgilda vettvangsliða sem tryggja fyrstu hjálp þegar útköll berast og annast einstaklinga þangað til sjúkrabíll og læknir mæta á staðinn. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Þar kemur fram að vettvangsliðaverkefnið er samstarfsverkefni Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og og Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. „Við erum mjög stolt af okkar fólki og þakklát fyrir þeirra fórnfýsi í þágu samfélagsins,“ segir á vefnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga