Selvík
Selvík
Tilkynningar | 11. maí 2021 - kl. 18:44
Kartöflugarðarnir í Selvík
Frá knattspyrnudeild Hvatar

Selvíkurgarðurinn verður tilbúinn von bráðar, en það verður auglýst nánar þegar hann verður klár. Það er hins vegar um að gera að hafa samband sem fyrst og panta pláss og eins væri gott að vita ef þeir sem hafa verið með stykki undanfarin ár ætla ekki að vera með í ár.

Líkt og í fyrra munum við eingöngu vinna syðra stykkið og er nóg pláss þar fyrir alla sem vilja vera með garð. Verð á fermetra er 100 kr.

Endilega pantið stykki með því að hafa sambandi við Erlu Ísafold Sigurðardóttir með eftirfarandi leiðum:

Í síma: 825 1133

Á netfang: hvot@simnet.is

Facebook: Erla Ísafold Sigurðardóttir

Pöntun þarf að fylgja nafn, kennitala og heimilisfang, einnig upplýsingar um hversu marga fermetra óskað er eftir.

Bestu kveðjur,
Knattspyrnudeild Hvatar

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga