Fréttir | 11. maí 2021 - kl. 22:15
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar 25. september. Á auka kjördæmaþingi í mars var kosið í þrjú efstu sætin en uppstillingarnefnd sá um að stilla upp á listann frá fjórða sæti. Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar leiðir listann og í öðru sæti er Jónína Björg Magnúsdóttir.
Listinn í heild sinni er þessi:
- Valgarður Lyngdal Jónsson – Akranes
- Jónína Björg Magnúsdóttir – Akranes
- Sigurður Orri Kristjánsson – Reykjavík
- Edda Katrín Einarsdóttir – Ísafjörður
- Ída Finnbogadóttir – Borgarbyggð
- Gunnar Rúnar Kristjánsson – Austur Húnavatnssýsla
- Ingimar Ingimarsson – Reykhólar
- Steinunn Sigurbjörndóttir – Dalasýsla
- Guðríður Sigurjónsdóttir – Akranes
- Gylfi Þór Gíslason – Ísafjörður
- Guðný Friðfinnsdóttir – Sauðakrókur
- Oddur Sigurðarson – Hvammstangi
- Salvör Svava G. Gylfadóttir – Borgarbyggð
- Guðni Kristjánsson – Sauðarkrókur
- Sigurbjörg K. Ásgeirsdóttir – Patreksfjörður
- Björn Guðmundsson – Akranes