Fréttir | 11. maí 2021 - kl. 22:21
Níu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi

Níu frambjóðendur, fjórar konur og fimm karlar, taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer dagana 16. og 19. júní næstkomandi. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt fjóra frambjóðendur. Einn frambjóðandi er úr Húnavatnssýslum en það er Magnús Magnússon sóknarprestur í Húnaþingi vestra.

Bergþóra Ingþórsdóttir 24 ára, nemi, Akranesi.
Bjarni Pétur Marel Jónasson 21 árs, Ísafirði.
Guðrún Sigríður Ágústsdóttir 47 ára, ráðgjafi, frá Bíldudal í Arnarfirði.
Haraldur Benediktsson 55 ára, alþingismaður og bóndi, Hvalfjarðarsveit.
Magnús Magnússon 48 ára, sóknaprestur, Húnaþingi vestra.
Sigríður Elín Sigurðardóttir 20 ára, sjúkraflutningakona og nemi, Akranesi.
Teitur Björn Einarsson 41 árs, lögmaður og 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi, Skagafirði.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 33 ára, alþingismaður, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, frá Akranesi.
Örvar Már Marteinsson 45 ára, skipstjóri, Ólafsvík.

Upplýsingar um frambjóðendur má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga