Höfðabraut 6 á Hvammstanga. Mynd. ssnv.is
Höfðabraut 6 á Hvammstanga. Mynd. ssnv.is
Fréttir | 13. maí 2021 - kl. 21:23
Ný húsakynni SSNV á Hvammstanga

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa flutt starfsemi skrifstofunnar á Hvammstanga í húsnæði Landsbankans, Höfðabraut 6. Á næstunni verður opnað skrifstofusetur í sama rými. Þar verður boðið upp á skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem vinna störf án staðsetningar og aðra þá sem þurfa á vinnuaðstöðu að halda.

Um er að ræða áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra sem unnið er með stuðningi frá Landsbankanum en afgreiðsla hans verður áfram rekin með óbreyttu sniði í húsnæðinu. Verið er að gera smávægilegar breytingar á rýminu áður en hægt er að opna aðstöðuna en hún verður öll eins og best verður á kosið, rúmgóð og björt, að því er segir á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga