Fréttir | 14. maí 2021 - kl. 23:06
Þriðjungur einstaklinga í nefndum og ráðum ríkisins séu búsettir á landsbyggðinni

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra telja mikilvægt að íbúar utan höfuðborgarsvæðisins hafi aðkomu að stjórnum, ráðum og nefndum hins opinbera. Á síðasta stjórnarfundi SSNV var lögð fram ályktun ársþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um skipan hins opinbera í stjórnir og nefndir.

Í henni er lagt til að í nýrri byggðaáætlun verði aðgerðir sem feli í sér að almennt sé gert ráð fyrir að, a.m.k. þriðjungur einstaklinga sem tilnefndir eru í stjórnir, ráð, nefndir og starfshópa á vegum ríkisins séu búsettir utan höfuðborgarsvæðisins. Þá skorar ársþing á fyrirtæki og félagasamtök sem starfa á landsvísu að horfa til sömu meginreglu.

Stjórn SSNV tekur undir ályktun SSNE og gerir hana að sinni. Byggðarráð Húnaþing vestra hefur einnig fjallað um ályktununina og tekur heilshugar undir hana.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga