Fréttir | 15. maí 2021 - kl. 21:33
Sérstökum takmörkunum aflétt í Skagafirði

Á fundi aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra fyrr í dag var tekin sú ákvörðun að óska ekki eftir því við heilbrigðisráðuneytið að framlengd verði sú reglugerð sem sett var fyrir sveitafélagið Skagafjörð og Akrahrepp vegna hópsmits sem upp kom á svæðinu um og fyrir síðastliðna helgi.

Jafnframt munu aðrar sóttvarnaraðgerðir sem aðgerðastjórn greip til og gilda til og með sunnudagsins 16. maí ekki verða framlengdar.

Þetta þýðir að frá miðnætti, sunnudagskvöldsins 16. maí gildir fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Akrahrepp reglugerð heilbrigðisráðherra, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem sett var 7. maí síðastliðinn með þeim takmörkunum sem þar er kveðið á um.

Aðgerðastjórnin telur að með þeim aðgerðum sem að gripið var til, hafi tekist að ná tökum á hópsmitinu. Engin smit hafa greinst utan sóttkvíar í síðastliðinni viku.

Aðgerðastjórnin vill ítreka að íbúar gæti að sínum einstaklingsbundnu sóttvörnum og mæti alls ekki til vinnu eða á aðra þá staði hvar fólk kemur saman sé það með einhver einkenni, heldur panti tíma í skimun á heilsuvera.is eða hafi samband við Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Aðgerðastjórn vill koma á framfæri þakklæti til íbúa, fyrirtækja og stofnana fyrir samstöðu og samheldni í þessu verkefni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga