Horft til Spákonufells. Mynd: skogur.is
Horft til Spákonufells. Mynd: skogur.is
Fréttir | 19. maí 2021 - kl. 11:01
One Tree Planted fjármagnar útivistarskóg Skagstrendinga

Skógræktin hefur undirritað samning við One Tree Planted um gróðursetningu 180.000 trjáplantna í hlíðum Spákonufells ofan þéttbýlisins á Skagaströnd. Verkefninu lýkur haustið 2024 og í kjölfarið vex upp skógur sem meðal annars nýtist íbúum Skagastrandar, nágrönnum þeirra og gestum til útivistar. Samningurinn var undirritaður 30. apríl og í honum felst að unnið verður að gróðursetningu næstu þrjú árin á um 140 hektara landi í neðanverðum hlíðum Spákonufells. Landið er í eigu Sveitarfélagsins Skagastrandar og þar hefur þegar verið gróðursett í um 25 hektara af viðkomandi svæði. Sagt er frá þessu á vef Skógræktarinnar.

Þar kemur fram að í samningnum við One Tree Planted er gert ráð fyrir að skógurinn verði blandskógur með birki, sitkagreni og alaskaösp en aðrar tegundir koma síður til greina í upphafi, enda eru sumrin svöl og vetrarveður geta orðið hörð. Hluta svæðisins þarf að jarðvinna fyrir gróðursetningu. Þegar fram líða stundir og skógurinn fer að mynda skjól má auka fjölbreytnina með fleiri trjátegundum sem gera meiri kröfur en stuðla að aukinni líffjölbreytni á svæðinu.

Framlag One Tree Planted til verkefnisins nemur um 150.000 Bandaríkjadollurum sem er hátt í nítján milljónir íslenskra króna. Samningurinn er án skuldbindinga annarra en þeirra að skóginum verði komið upp og honum viðhaldið til framtíðar. Skila skal framvinduskýrslu þegar verkið verður hálfnað, aftur þegar gróðursetningu er lokið og loks lokaúttekt ári síðar. Gróðursetning hefst vorið 2022.

Forsaga verkefnisins í hlíðum Spákonufells er sú að á síðasta ári var undirritaður samstarfssamningur milli Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skógræktarinnar um skógrækt á svæðinu. Skógræktarsvæðið teygir sig frá Skagastrandarvegi upp að Urðarhólum og hlykkjast í hlíðinni inn að gamla skíðasvæðinu og inn í Hrafndal. Það teygir sig svo aftur í norður fyrir neðan gamla skíðaskálann, norður fyrir malarnámurnar og lokar hringnum við Skagastrandarveg. Heimafólk óskaði eftir samstarfi við Skógræktina um skógrækt á svæðinu til eflingar samfélagi og umhverfi.

Sjá nánari umfjöllun á vef Skógræktarinnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga