Málverkið sem Jóhann gaf
Málverkið sem Jóhann gaf
Jóhann Sigurðsson
Jóhann Sigurðsson
Fréttir | 09. júní 2021 - kl. 22:04
Gjöf í minningu foreldra sinna
Frá Hollvinasamtökum HSB

Síðastliðinn laugardag færði Jóhann Sigurðsson, matreiðslumaður og listmálari, formanni Hollvinasamtakanna málverk að gjöf til minningar um foreldra sína, Guðrúnu Ingimarsdóttur og Sigurð Kr. Jónsson. Málverkið er af gamla bænum á Blönduósi og verður listaverkið sett upp í aðstandendaíbúðinni. Samtökin þakka Jóhanni kærlega fyrir gjöfina, sem mun án efa gleðja þá sem þar eiga eftir að koma.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga