Mynd: ssnv.is
Mynd: ssnv.is
Fréttir | 09. júní 2021 - kl. 11:52
Fyrst í nýja aðstöðu Útibúsins

Beate Maria Kury hjá Ferðamálastofu er fyrsti starfsmaðurinn í nýrri aðstöðu Útibúsins – skrifstofusetursins á Hvammstanga. Í Útibúinu eru tíu skrifstofurými í björtu og glæsilegu húsnæði á Höfðabraut 6. Val er um annars vegar opin rými sem stúkuð eru af með hljóðdempandi skilrúmum og hins vegar lokaðar skrifstofur.

Nú þegar eru fjögur rými komin í leigu, í þrem af þeim situr starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Sagt er frá þessu á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga