Gamla kaupfélagið á Skagaströnd. Mynd: skagastrond.is
Gamla kaupfélagið á Skagaströnd. Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 11. júní 2021 - kl. 09:28
The Phoenix Factor - Fönix áhrifin
Fyrirlestur um iðnminjar

Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og Nes listamiðstöð bjóða til fyrirlesturs breska fræðimannsins David Kampfner frá Háskólasetri Vestfjarða. Fyrirlesturinn, sem ber yfirskriftina Finding the Phoenix Factor: Industrial Heritage Conservation in Iceland, verður í sal rannsóknarsetursins í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd mánudaginn 14. júní og hefst klukkan 17.

Kampfner mun skoða iðnminjar sem fengið hafa nýtt hlutverk með áherslu á áhrif þeirra á efnahagslegar og félagslegar breytingar. Um alla Evrópu hafa iðnminjar orðið mikilvægur þáttur í byggðaþróun og endurnýjun atvinnulífs. Fram að þessu hefur þó þáttur þeirra í breytingum á Íslandi verið vanmetinn.

Sextán minjastaðir á mismunandi stigum endurnýtingar voru skoðaðir. Einnig niðurstöður úr 50 viðtölum við aðila tengda málefninu, sem tekin voru frá september 2019 til janúar 2021.

Rannsókn Kampfner setur fram tillögur að stefnumótun varðandi aðgerðir til að styðja við varðveislu 20. aldar iðnminja á Íslandi og hvernig varðveislan gæti í framtíðinni tengst ferðaþjónustu og skipulagsstefnum.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku og er öllum opinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga