Fréttir | 11. júní 2021 - kl. 10:54
Almennar fjöldatakmarkanir verða 300 manns og nándarregla 1 metri

Frá og með 15. júní fara fjöldatakmörk úr 150 manns í 300 og nándarregla verður einn metri í stað tveggja. Á sitjandi viðburðum verður engin nándarregla en öllum skylt að bera grímu. Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, þ.e. til miðnættis. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar á reglugerð um takmarkanir á samkomum innanlands og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að staðan hér á landi varðandi heimsfaraldur Covid-19 sé góð. Frá 25. maí síðastliðnum þegar gildandi reglur voru settar hafi 42 einstaklingar greinst með Covid-19 innanlands, þar af 25 í sóttkví. Síðustu daga hafi daglegum tilfellum fækkað mikið og enginn greinst utan sóttkvíar þrátt fyrir að mörg sýni hafi verið greind.

Nærri 200.000 manns hafa fengið a.m.k. eina bóluefnasprautu og rúmlega 100.000 manns eru fullbólusettir. Rúmlega 90% þeirra sem eru 50 ára og eldri hafa fengið a.m.k. eina bólusetningu en tæplega 50% þeirra sem eru yngri en 50 ára. Sóttvarnalæknir segir enn nokkuð vanta upp á að gott hjarðnæmi náist meðal yngra fólks og því þurfi að fara rólega í afléttingar á sóttvarnaaðgerðum innanlands þar til hærra hlutfall yngra fólks hefur verið bólusett. Einnig bendir hann á að um þrjár vikur tekur að fá góða vernd eftir fyrstu bólusetningu. 

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. júní:

  • Almennar fjöldatakmarkanir 300 manns. Börn fædd 2015 og síðar áfram undanþegin.
  • Nándarregla einn metri í stað tveggja.
  • Sitjandi viðburðir: Engin krafa um nándarmörk. Áfram grímuskylda og að hámarki 300 manns í hverju sóttvarnahólfi. Með sitjandi viðburðum er átt við leikhús, íþróttaviðburði, athafnir trúar- og lífsskoðunarfélaga, ráðstefnur og viðlíka.
  • Veitingastaðir: Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, frá kl. 23 til miðnættis. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 01.00.

Gildistími: Reglugerð sem felur í sér ofangreindar breytingar á samkomutakmörkunum innanlands mun gilda til og með þriðjudagsins 29. júní næstkomandi.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga