Fréttir | 13. júní 2021 - kl. 23:15
Listi VG samþykktur í NV-kjördæmi

Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarmaður, leiðir lista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, en listinn var samþykktur á fjölsóttum fundi á Hótel Laugabakka í Miðfirði í dag. Bjarni sagði meðal annars í ræðu á fundinum að til framtíðar lægju miklir möguleikar í sterkara VG á sveitarstjórnarstiginu og samvinnu landsmálanna og sveitarstjórnamálanna.

Bjarni, sem er nýr oddviti VG í kjördæminu, þakkaði ráðherrum VG, fyrir mikla vinnu og framsækni sem hefði leitt til vitundarvakningar í samfélaginu þótt ekki hefðu öll mál náðst í höfn á kjörtímabilinu. Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður er í öðru sæti listans. Í ræðu sinni sagði hún að með gleði og samvinnu sé allt hægt og að hún muni láta til sín taka í málefnum launafólks, sjómanna og byggðanna og fyrir réttlátara samfélagi með umhverfismál að leiðarljósi. Hún sagðist fyllast andagift yfir fjölbreytileikanum á listanum og þeirri góðu stemningu sem ríkti. Sigríður Gísladóttir, dýralæknir á Ísafirði er í þriðja sæti og Þóra Margrét Lúthersdóttir, bóndi í því fjórða.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður VG og sérstakur gestur fundarins, ræddi kosningabaráttuna framundan og hvatti frambjóðendur og almenna félagsmenn til dáða. Nú verði áfram byggt á þeim góða grunni sem lagður hafi verið í ríkisstjórn, það verði bygggt á samþykktum síðasta landsfundar og horft fram á veginn og talað við fólkið í landinu.

1. Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarmaður, Hólum í Hjaltadal
2. Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, Suðureyri
3. Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, Ísafirði
4. Þóra Margrét Lúthersdóttir, sauðfjár- og skógarbóndi, Forsæludal í Vatnsdal
5. Lárus Ástmar Hannesson, kennari og bæjarfulltrúi, Stykkishólmi
6. Heiðar Mar Björnsson, kvikmyndagerðarmaður, Akranesi
7. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, kennslustjóri og formaður byggðaráðs, Reykholti
8. Ólafur Halldórsson, nemi og starfsmaður í aðhlynningu, Skagaströnd
9. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, Strandabyggð
10. María Hildur Maack, umhverfisstjóri, Reykhólum
11. Auður Björk Birgisdóttir, háriðnmeistari og bóndi, Hofsósi
12. Einar Helgason, smábátasjómaður og skipstjóri, Patreksfirði
13. Brynja Þorsteinsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla og varam. í sveitarstjórn, Borgarnesi
14. Rún Halldórsdóttir, læknir, Akranesi
15. Valdimar Guðmannsson, iðnverkamaður og eldri borgari, Blönduósi
16. Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi, Brúarlandi á Mýrum

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga