Fréttir | 14. júní 2021 - kl. 10:40
Kormákur/Hvöt með treyju uppboð

Keppnistreyja Kormáks/Hvatar hefur vakið verðskuldaða eftirtekt í leikjum sumarsins, enda einstök á allan hátt. Aðdáendasíða Kormáks/Hvatar á Facebook hefur opnast gluggi til að bjóða upp eina treyju til styrktar starfinu og gefa þannig tískuþyrstum tækifæri á að eignast hana, áritaða af leikmönnum ef vill.

Uppboðið fer þannig fram:

1. Sendu póst á khknattspyrna@gmail.com með boðinu þínu. Það verður að vera minnst krónu hærra en gildandi hæsta boð.
2. Hæsta boð hverju sinni verður sett inn í athugasemdir á Aðdáendasíðunni. Aðrar athugasemdir gilda ekki og fólk er beðið um að setja ekki inn boð sín í athugasemdir.
3. Uppboðinu lýkur klukkan 15:00 sunnudaginn 20. júní næstkomandi og eru boð bindandi.

Allir fagurkerar, áhugamenn um tísku, auðmenn og fyrirtæki eru hvött til að styrkja verðugt málefni og eignast um leið minnisvarða um húnvetnska samstöðu.

„Látið ekki happ úr hendi sleppa, eignist treyjuna sem allir eru að tala um!“

Aðdáendasíða Kormáks/Hvatar á Facebook

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga