Skjáskot af N4
Skjáskot af N4
Fréttir | 17. júní 2021 - kl. 08:13
Allt uppbókað á opnunardegi Harbour

Allt er uppbókað í dag á Harbour restaurant & bar sem opnar í fyrsta sinn á Skagaströnd í dag. Tvenn hjón standa að veitingastaðnum, þau Stefán Sveinsson og Hafdís Ásgeirsdóttir, og Slavko Velemir og Birna Sveinsdóttir. Undanfarin misseri hefur verið unnið að opnun staðarins sem staðsettur er við höfnina.

Matseðillinn er fjölbreyttur og skartar fiski, lambakjöti, salati, pizzum, hamborgurum og ýmsum smáréttum. Lögð er mikil áhersla á að vinna sem mest með hreinar afurðir beint frá býli og bryggju. Í sumar verður staðurinn opinn á sunnudögum til fimmtudaga frá 11:30 til 21:00 og á föstudögum til laugardaga frá 11:30 til 01:00. Eldhúsið er opið alla daga til 20:30.

Sjá viðtal við hjónin sem standa að veitingastaðnum á N4 hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga