Fréttir | 18. júní 2021 - kl. 10:16
Viðtöl um deiliskipulag í gamla bænum

Skipulagsfulltrúi Blönduósbæjar og skipulagsráðgjafi frá Landmótun bjóða upp á viðtöl um deiliskipulags í gamla bænum á Blönduósi þriðjudaginn 29. júní. Einstaklingar eða hópar geta pantað sér tíma á netfangið magnus@blonduos.is með ósk um tímasetningu fyrir viðtal. Fyrsti viðtalsfundurinn verður klukkan 10 og svo á hálftíma fresti eftir það fram eftir degi.

Þetta kemur fram í auglýsingu á vef Blönduósbæjar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga