Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:18 0 0°C
Laxárdalsh. 15:18 0 0°C
Vatnsskarð 15:18 0 0°C
Þverárfjall 15:18 0 0°C
Kjalarnes 15:18 0 0°C
Hafnarfjall 15:18 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Frá Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Frá Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Fréttir | 18. júní 2021 - kl. 18:26
Viðmið um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga lögfest með breytingu á sveitarstjórnarlögum

Alþingi samþykkti um síðustu helgi stjórnarfrumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Ein meginbreytingin felur í sér að stefnt skuli að því að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga verði ekki undir 1.000 manns.

Lagabreytingarnar eru í samræmi við markmið í stefnu í málefnum sveitarfélaga fyrir tímabilið 2019 til 2033 sem Alþingi hefur samþykkt. Markmiðið er að styrkja umgjörð og grundvöll sveitarstjórnarstigsins og tryggja að sveitarfélög geti sinnt lögbundinni skyldu sinni, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Markmiðið er að auka sjálfstjórn og sjálfbærni sveitarfélaga og efla sveitarstjórnarstigið í heild þannig að sveitarfélögin séu betur í stakk búin til að mæta margvíslegum áskorunum sem þau og samfélagið allt stendur frammi fyrir á hverjum tíma, sem og að sinna brýnum hagsmunamálum íbúanna.

Lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga
Í því skyni að auka sjálfbærni sveitarfélaga og tryggja getu þeirra til að annast lögbundin verkefni skal nú stefna að því að lágmarksíbúafjöldi sé ekki undir 1.000. Ef íbúafjöldi er undir þeim mörkum við almennar sveitarstjórnarkosningar skal sveitarstjórn þess, innan árs frá þeim kosningum, leitast við að markmiðinu með því að:

  • hefja formlegar sameiningarviðræður við annað eða önnur sveitarfélög eða
  • vinna álit um stöðu sveitarfélagsins, getu þess til að sinna lögbundnum verkefnum og um þau tækifæri sem felast í mögulegum kostum sameiningar sveitarfélagsins við annað eða önnur sveitarfélög.

Eftir þinglega meðferð var horfið frá því að ráðherra geti haft frumkvæði að sameiningu sveitarfélaga hafi sveitarfélögum ekki tekist að ná lágmarksíbúafjölda fyrir árið 2026.

Sjá nánari upplýsingar um breytingarnar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið