Guðmundur Haukur er nýr forseti sveitarstjórnar. Mynd: blonduos.is
Guðmundur Haukur er nýr forseti sveitarstjórnar. Mynd: blonduos.is
Fréttir | 21. júní 2021 - kl. 11:18
Guðmundur Haukur nýr forseti sveitarstjórnar

Á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar í síðustu viku fóru fram kosningar samkvæmt samþykktum. Guðmundur Haukur Jakobsson hættir sem formaður byggðaráðs og verður forseti sveitarstjórnar. Sigurgeir Þór Jónasson verður formaður byggðaráðs og Hjálmar Björn Guðmundsson kemur nýr inn í ráðið af L-lista.

Þá kemur Auðunn Steinn Sigurðsson inn sem aðalmaður í menningar-, íþrótta- og tómstundanefnd í stað Magnúsar Vals Ómarssonar.

Jafnréttisnefnd var lögð niður í samræmi við tilkynningu frá Jafnréttisstofu um breytingar á jafnréttislögum, hlutverk nefndarinnar voru færð til byggðaráðs.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga