Sigríður Helga. Mynd: blonduos.is
Sigríður Helga. Mynd: blonduos.is
Fréttir | 21. júní 2021 - kl. 11:26
Sigríður Helga ráðin leikskólastjóri

Sigríður Helga Sigurðardóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Barnabæjar á Blönduósi og hóf hún störf 1. júní síðastliðin. Sigríður Helga hefur starfað við leikskólann í rúm 20 ár sem deildarstjóri, aðstoðarleikskólastjóri og við sérkennslu. Hún hefur verið starfandi leikskólastjóri frá því síðastliðið haust. Barnabær er fimm deilda skóli með um 70 leikskólabörn frá 8 mánaða aldri. Einkunnarorð leikskólans er leikur-gleði-virðing.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga