Við Vatnsdalsá
Við Vatnsdalsá
Fréttir | 22. júní 2021 - kl. 11:39
Rólegt yfir opnun laxveiðiáa

Laxveiðiárnar opna nú hver af annarri og þar á meðal eru Laxá á Ásum sem opnaði 17. júní og Víðidalsá og Vatndalsá sem opnuðu 20. júní. Opnun Laxár á Ásum var róleg en tveimur löxum var landað. Á opnunardeginum í Víðidalsá veiddust fimm laxar en veiðimenn urðu varir við lax á öllum svæðum. Enginn lax veiddist í opnun Vatnsdalsár en fyrsti laxinn þar í sumar veiddist í gær.

Heilt yfir hefur verið rólegt yfir laxveiðinni sem af er sumri en líklegt á það nú eftir að breytast þegar veður batnar og fleiri fiskar ganga í árnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga