Fréttir | 22. júlí 2021 - kl. 09:39
Selatalningin mikla

Selatalningin mikla verður haldin á vegum Selaseturs Íslands á Hvammstanga sunnudaginn 25. júlí klukkan 13. Selasetrið hvetur alla til að taka þátt, hvort sem það eru heimafólk, landeigendur eða ferðamenn á ferð um landið. Með þátttöku gefst fólki kostur á að skoða landsel í sínu náttúrulega umhverfi.

Dagskrá:

Kl. 13:00, er afhending gagna, kynning og þjálfun á Selasetrinu. Kaffiveitingar í boði fyrir þátttakendur.

Kl. 15:00-19:00, fer selatalningin fram.

Kl. 19:00 eða þegar talningu á svæðinu líkur. Þá fer skráning gagna fram á netinu eða með því að skila gögnum á Selasetrið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga