Listaverk Shoplifter í Hrútey. Ljósm: Vigfús Birgisson
Listaverk Shoplifter í Hrútey. Ljósm: Vigfús Birgisson
Fréttir | 16. júlí 2021 - kl. 08:51
Húnavöku fössari

Húnavakan býður upp á eitt og annað skemmtilegt í dag. Frá klukkan 13 til 16 heldur Sirkus unga fólksins sirkusnámskeið í Íþróttamiðstöðinni en halda átti námskeiðið á túninu fyrir framan Heimilisiðnaðarsafnið. Námskeiðið er fyrir börn fædd 2009-2015 og er skipt í tvo aldursflokka. Námskeið fyrir börn fædd 2013-2015 er frá klukkan 13 til 14:30 og fyrir börn fædd 2009-2012 frá klukkan 14:30 til 16.

Verslun SAH Afurða tekur á móti gestum að Húnabraut 39 milli klukkan 13 og 17 í dag þar sem kynning á vörum fyrirtækisins fer fram og Húnavökutilboð verða í boði á grillkjöti og grillpylsum. Útitónleikar verða haldnir hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi klukkan 14:30 þar sem Eyjólfur Kristjánsson treður upp. Fatamarkaður verður opinn í dag við hliðina á Kjörbúðinni frá klukkan 13-17.

Leikhópurinn Lotta verður á Þríhyrnunni klukkan 17 með skemmtileg atriði unnin upp úr Litlu gulu hænunni og er frítt fyrir alla í boði Blönduósbæjar. Afmælishátíð verður í sveitaversluninni á Hólabaki milli klukkan 17 og 19 en 10 ár eru síðan fyrstu vörur fyrirtækisins fóru á markað. Boðið verður upp á tertu og pylsur og Eyþór Ingi lítur við og spilar nokkur lög. Afsláttur verður af völdum vörum.

Tónleikar verða á skólalóð Blönduskóla í kvöld klukkan 20:30 til 23. Þar koma fram Sveppi og Villi, Eyþór Ingi, Húnabandið, Eyjólfur Kristjánsson og Stuðlabandið. Klukkan 23 hefst svo stórdansleikur með Stuðlabandinu í Félagsheimilinu.

Heimilisiðnaðarsafnið, sundlaugin, Minjastofan og Vatnsdæla á refli taka vel á móti gestum Húnavöku í allan dag og Flugklúbbur Blönduós verður með útsýnisflug ef veður og aðstæður leyfa. Þá er vert að minnast á útilistaverkin í Hrútey eftir listakonuna Hrafnhildi Arnardóttur eða Shoplifter eins og hún kallar sig. Þar stillir hún náttúruperlunni Hrútey og gervináttúruverkum sínum upp sem hliðstæðum sem einnig má skoða sem andstæður, samstæður eða gagnstæðar spegilmyndir. Meðfylgjandi myndir eru af listaverkum Shoplifter í Hrútey en þær voru teknar af Vigfúsi Birgissyni ljósmyndara.

-Fréttin hefur verið uppfærð

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga