Við upphaf leiks í gær
Við upphaf leiks í gær
Fréttir | 18. júlí 2021 - kl. 12:46
Úlfarnir sigraðir á Blönduósvelli

Kormákur/Hvöt tók á móti Úlfunum á Blönduósvelli í gær þegar leikið var í tíundu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Fyrri hálfleikur var fjörugur og voru öll þrjú mörk leiksins skoruð í honum. Fyrsta markið kom eftir 15 mínútna leik en það gerðu gestirnir. George Razvan Chariton jafnaði leikin fyrir Kormák/Hvöt á 22. mínútu og Bjarki Már Árnason kom svo heimamönnum yfir á 42. mínútu.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og 2-1 sigur heimamanna staðreynd. Kormákur/Hvöt er í öðru sæti riðilsins með 24 stig, þremur stigum á eftir Vængjum Júpíters sem er í efsta sæti. Næsti leikur er gegn Vatnaliljunum og fer hann frá á Hvammstangavelli laugardaginn 24. júlí klukkan 17.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga