Ástrós Elísdóttir. Mynd: ssnv.is
Ástrós Elísdóttir. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 20. júlí 2021 - kl. 22:04
Nýr verkefnastjóri Sóknaráætlunar Norðurlands vestra

Ástrós Elísdóttir hefur verið ráðin til Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem verkefnisstjóri Sóknaráætlunar landshlutans og atvinnuráðgjafi. Meginstarfsstöð Ástrósar verður á Skagaströnd með fastri vikulegri viðveru á Blönduósi. Meðal verkefna hennar verður umsjón með framkvæmd Sóknaráætlunar landshlutans, þ.m.t. úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs, skýrslugerð, samskipti við styrkþega og upplýsingamiðlun um framgang áætlunarinnar. Hún mun jafnframt sinna almennri atvinnuráðgjöf með sérstakri áherslu á stuðning við menningartengda starfsemi á Norðurlandi vestra.

Ástrós er með MA próf í ritlist frá Háskóla Íslands, BA próf í leikhúsfræðum frá Listadeild Háskólans í Bologna, auk þess að hafa lokið viðbótar diplomanámi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands sem og leiðsögumannanámi frá Leiðsöguskóla Íslands.

Hún hefur umfangsmikla reynslu af verkefnastjórnun, rekstri og áætlanagerð, m.a. við framkvæmd ýmissa sérverkefna. Má þar nefna ritstjórn, uppsetningu ýmissa menningarviðburða og bókaútgáfu. Hún starfaði um nokkurt skeið sem fræðslustjóri Borgarleikhússins og tók þar m.a. virkan þátt í verkefnavali leikhússins, sinnti sýningarstjórn fyrir leikhúsið ásamt textagerð og vann að erlendu samstarfi. Ástrós mun hefja störf í næsta mánuði. Sagt er frá þessu vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga