Hundur
Hundur
Fréttir | 22. júlí 2021 - kl. 08:43
Kvartað undan lausagöngu hunda

Kvartanir hafa borist vegna lausagöngu hunda á Hvammstanga og að hundaeigendur hirði ekki upp eftir hunda sína á opnum svæðum sveitafélagsins, útivistarsvæðum, einkalóðum og gönguleiðum sem eru á Hvammstanga. Á vef sveitarfélagsins eru íbúar minntir á að samkvæmt samþykktum um hunda- og kattahald er lausaganga hunda í þéttbýli bönnuð.

Í samþykktunum segir: „Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa innan marka þéttbýlis nema nytjahunda þegar þeir eru að störfum og í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundar skulu að öðru leyti ávallt vera í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir þeim. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum húss. Eiganda eða umráðamanni hunds er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga