Sveitarstjóri Blönduósbæjar og eigendur GN ehf.
Sveitarstjóri Blönduósbæjar og eigendur GN ehf.
Fréttir | 25. júlí 2021 - kl. 11:20
Samningur um akstur fyrir aldraða og hjólastólanotendur

Blönduósbær ætlar að gera rammasamning til reynslu við GN ehf. um akstur fyrir aldraða og þá sem þurfa hjólastólaaðgengi. GN, sem er með samning um skólaakstur fyrir sveitarfélagið, hefur nú þegar keypt fjölnota bifreið með góðu hjólastólaaðgengi og sætum. Aukin þjónusta verður betur kynnt fyrir hlutaðeigandi og sveitarfélögum á svæðinu, að því segir á vef Blönduósbæjar.

Eigendur GN ehf. eru Gunnlaug S Kjartansdóttir og Jón Ragnar Gíslason.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga