Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 03. ágúst 2021 - kl. 09:43
Óskað er eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra

Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenningar í Húnaþingi vestra óskar eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í sveitarfélaginu. Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin, sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra, vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu.

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið; umhverfisstjori@hunathing.is fyrir 16. ágúst næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga