Nöldrið | 17. ágúst 2021 - kl. 13:48
Baráttan heldur áfram

Ný bylgja kórónuveirufalaldurs hér á landi er áminning um að baráttan við veiruna er hvergi nærri lokið. Bylgjan sem nú ríður yfir er sú stærsta og hafa flesta daga greinst yfir 100 smit á dag. Þegar þessi orð eru skrifuð er Norðurland vestra sá landshluti sem fæstir eru skráðir í einangrun og sóttkví. Vonandi að svo verði áfram og að við náum tökum á þessari bylgju sem fyrst. Áfram eru bólusetningar boðaðar, nú eru það örvunarskammtar fyrir eldra fólk og ungafólkið sem fékk Janssen og þá er byrjað að bólusetja börn á aldrinum 12-15 ára. Svo er bara að sjá hverju þetta skilar í baráttunni við faraldurinn.

Þegar sumarið kom loksins í Húnavatnssýslur þá hefur það verið með eindæmum gott og er enn. Sól og þurrkur hefur þó neikvæð áhrif á heyfeng sumra bænda en kalt vor spilar þar einnig stóra rullu. Fram kom í fréttum að víða hafi bændur náð inn ágætum heyfeng og þá einna helst þeir sem búa í Austur-Húnavatnssýslu. Vestursýslan hafi ekki sloppið eins vel frá þurrkunum sem hamlað hafa sprettu og sums staðar eru tún mikið brunnin og bændur horfa fram á tjón og rýra uppskeru. Sól og þurrkur hefur líka áhrif á laxveiðina í húnvetnsku laxveiðiánum. Hitastig ánna hækkar og vatnsmagnið minnkar. Þannig hefur óvenju lítið af laxi veiðst fyrir ofan flóðið í Vatnsdal í sumar líklega vegna þess að vatnið er of heitt fyrir laxinn að ganga. Annars hefur laxveiðin í Húnavatnssýslum verið svipuð því og hún var í fyrr og árið þar áður.

Ferðamenn hafa verið duglegir við að stoppa í Húnavatnssýslum í sumar á ferð sinni um landið. Góð aðsókn hefur verið í sundlaugar svæðisins og í Selasetrið á Hvammstanga. Aðsóknarmet var slegið í sundlaugina á Blönduósi en rúmlega 5.000 fleiri gestir höfðu heimsótt laugina í lok júlí miðað við sama tíma í fyrra. Ferðagjöf stjórnvalda er þó minnst notuð á Norðurlandi vestra af öllum landshlutum. Búið er að nota nýju ferðagjöfina fyrir 330 milljónir króna á landinu öllu og hafa aðeins sex milljónir af þeirri fjárhæð verið notaðar á Norðurlandi vestra. Um 2,5 milljón hafa farið í gistingu, 2 í afþreyingu og 1,5 í veitingar.

Bæjarhátíðirnar tvær, Húnavaka og Eldur í Húnaþingi, heppnuðust ljómandi vel í sumar og voru báðar vel sóttar af brottfluttum Húnvetningum og öðrum gestum. Hátíðirnar sluppu rétt fyrir horn áður en samkomutakmarkanir voru aftur hertar, sem var 25. júlí, á lokadegi Eldsins. Kórónuveiran setti þó strik í reikning umsjónarmanns og skipuleggjanda Húnavöku sem þurfti að dúsa í sóttkví á meðan á hátíðinni stóð.

Haustið er á næsta leiti með öllu sem því fylgir og vonandi að það verði Húnvetningum sem og landsmönnum öllum farsælt.

Höf. Nöldri

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga