Fréttir | 08. september 2021 - kl. 10:20
Harmonikkutónleikar í Hvammstangakirkju

Storm Duo heldur harmonikkutónleikar í Hvammstangakirkju föstudaginn 10. september klukkan 10. Storm Duo skipa harmonikkuleikararnir Ásta Soffía Þorgeirsdóttir frá Húsavík og Kristina Farstad Björdal frá suður Mæri í Noregi. Á tónleikunum verður fjölbreytt efnisskrá til að sýna margbreytileika harmonikkunnar. Norsk þjóðlagatónlist, klassísk tónlist, harmonikkuslagarar og fleira.

Ásta og Kristina eiga að baki tónlistarnám í harmonikkuleik frá Tónlistarháskólanum í Osló, Kaupmannahöfn og Freiburg og hafa spilað mikið bæði í Noregi og á Íslandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga