Fellsborg
Fellsborg
Fréttir | 09. september 2021 - kl. 13:01
Félagstarf á Skagaströnd

Vetrarstarf félagsstarfsins á Skagaströnd hefst í dag klukkan 14. Starfsemin fer fram í Fellsborg og verður opin frá klukkan 14-17, mánudaga og fimmtudaga. Gengið er inn að sunnanverðu. Allir sem náð hafa 60 ára aldri og öryrkjar, eru velkomnir. Velkomið er að koma og fá sér kaffi og spjalla.

Ef fólk óskar eftir að vera sótt, hafið þá samband við Obbu, Gsm: 8614683

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga