Fréttir | 09. september 2021 - kl. 13:04
Kvennahlaup ÍSÍ á laugardaginn

Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið á laugardaginn. Á Blönduósi verður lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi klukkan 11. Að hlaupi loknu verður hressing í boði Kjörbúðarinnar og Kristall frá Ölgerðinni. Þennan dag verður frítt í sund fyrir alla þátttakendur í boði Blönduósbæjar. Allir eru hvattir til að mæta og njóta útiverunnar saman.

Fyrsta kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við íþróttahátíð ÍSÍ. Upphaflega var markmið hlaupsins að fá fleiri konur út að hreyfa sig og hvetja konur til þátttöku í starfi íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Þau markmið hafa um margt náðst þar sem konur hreyfa sig mun meira í dag en fyrir 30 árum.

Í dag er áherslan ekki hvað síst á samstöðu kvenna, að hver njóti þess að hreyfa sig á sínum forsendum og eigi ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum. Hlaupið er árviss viðburður hjá mörgum konum sem taka daginn frá til að hlaupa með dætrum, mæðrum, ömmum, systrum, frænkum og vinkonum sínum og margir karlmenn slást líka í hópinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga