Ljósm. Róbert Daníel Jónsson.
Ljósm. Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 14. september 2021 - kl. 08:24
Kennsla á Frisbígolfvöllinn fyrir 60 ára og eldri

Miðvikudaginn 15. september kl. 13:00 verður Blönduósingum og nágrönnum, 60 ára og eldri boðið upp á kynningu á frisbígolfvellinum. Byrjað verður á því að fara yfir grunnatriðin í frisbígolfi og svo verður spilaður einn hringur á vellinum.

Brautirnar eru allar stuttar og skemmtilegar og hringurinn tekur u.þ.b. 30-40 mínútur. Kristín Ingibjörg verður með frisbídiska til láns. Mæting í Fagrahvammi við vallarskiltið. Vonandi láta sem flestir sjá sig.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga