Blönduskóli
Blönduskóli
Fréttir | 14. september 2021 - kl. 09:06
Fjölskylduganga á Blönduósi

Í tilefni af verkefninu Göngum í skólann ætlar Blönduskóli að bjóða upp á fjölskyldugöngu á morgun, miðvikudaginn 15. september klukkan 17. Lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni og genginn rúmlega þriggja kílómetra hringur um Blönduós. Leiðin sem farin verður er: Íþróttamiðstöð, Holtabraut, leikskóli, upp Klaufina, brúnirnar fyrir ofan bæinn og svo niður Melabraut.

Gott er að hafa í huga að leiðin hentar ekki fyrir barnavagna eða kerrur.

Blönduskóli hvetur fjölskyldur til að mæta með nemendum og kennurum í gönguna og eiga skemmtilega samverustund með öðrum fjölskyldum í leiðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga