Húnavellir
Húnavellir
Fréttir | 14. september 2021 - kl. 11:15
Skoðanakönnun meðal íbúa Húnavatnshrepps um sameiningarviðræður við Blönduósbæ

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps ætlar að gera skoðanakönnun meðal íbúa sveitarfélagsins um hvort hefja eigi sameiningarviðræður við Blönduósbæ. Hafi íbúar áhuga á slíku er stefnt að því að íbúar beggja sveitarfélaga kjósi um sameiningu þeirra í byrjun næsta árs, með það fyrir augum að kosið yrði til nýrrar sveitarstjórnar í maí 2022. Skoðanakönnunin fer fram á sambærilegan hátt og kosningar, en er ekki bindandi.

Tilkynning um skoðanakönnunina er birt á vef Húnavatnshrepps. Þar segir að áður en kosið yrði um sameiningu færi fram almenn kynning og umræða eins og lög gera ráð fyrir við sameiningarviðræður. Skoðanakönnunin fer fram á sambærilegan hátt og kosningar, en er ekki bindandi.

Íbúar Húnavatnshrepps geta sent sveitarstjórn spurningar á netfangið konnun@hunavatnshreppur.is og verður þeim spurningum svarað á vefsíðu sveitarfélagsins.

Hverjir mega taka þátt?

  • Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þann 25. september og eiga lögheimili í Húnavatnshreppi þann 30. ágúst síðastliðinn.
  • Norrænir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og náð hafa 18 ára aldri.
  • Aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt og náð hafa 18 ára aldri.

Hvar er hægt að taka þátt?

  • Á kjörstað alþingiskosninga á Húnavöllum klukkan 11-19 þann 25. september.
  • Utankjörfundar á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma.
  • Íbúar sem eru á sjúkrastofnun geta óskað eftir að taka þátt með því að senda beiðni á netfangið konnun@hunavatnshreppur.is.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga