Gagnaver Etix Everywhere Borealis
Gagnaver Etix Everywhere Borealis
Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis
Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis
Framkvæmdir hafnar við hlið núverandi gagnavera. Ljósm. Höskuldur B. Erlingsson
Framkvæmdir hafnar við hlið núverandi gagnavera. Ljósm. Höskuldur B. Erlingsson
Fréttir | 15. september 2021 - kl. 12:25
Framkvæmdir hafnar við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi

Framkvæmdir við stækkun gagnavers Etix Everywhere Borealis á Blönduósi eru hafnar. Um er að ræða byggingu á nýju húsi sem hannað er til að hýsa fjölbreyttar þarfir viðskiptavina gagnaversins á öruggan og umhverfisvænan máta. Munu snjallnetslausnir verða nýttar til að tryggja rekstraröryggi og auka nýtni orkuflutnings.   

Etix Everywhere Borealis leggur áherslu á rekstur sjálfbærra gagnavera á heimsmælikvarða með lágmarks kolefnisfótspori. Það er gert með því að nýta umhverfishita til kælingar og keyra tölvubúnað með endurnýjanlegri orku í gegnum öruggt flutningskerfi raforku á Íslandi.

Stækkun og vöxtur á svæðinu er háður afhendingu á orku og er þessi framkvæmd liður í því að fylgja afhendingaráætlun sem mun eiga sér stað í áföngum. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir frekari stækkun á komandi árum. “Það er okkar bjargfasta trú að Blönduós sé einstakt svæði til uppbyggingar á gagnaversþjónustu. Samspil nágrennis og landfræðilegra þátta við Blönduvirkjun,ásamt framsýni og stefnu sveitarfélagsins gerir svæðið eitt það besta sem völ er á fyrir slíka uppbyggingu. Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagnaverslausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi”, segir Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok þessa árs en það hefur reynst félaginu vel að vinna með öflugum verktökum á svæðinu. Unnið hefur verið með hönnuðum og sérfræðingum frá EcoCooling, Arkís, Verkís og Beka við útfærslu á gagnaverinu.

“Það er mikil ánægja innan okkar raða að geta ráðist í stækkun á gagnaverinu á Blönduósi sem er eina stóra gagnaverið sem rekið er utan suðvestur horns landsins. Staðsetningin er kjörin til uppbyggingar og býður upp á mikil tækifæri í umhverfisvænum og öruggum gagnaverslausnum. Samstarfið við sveitarfélagið hefur verið til fyrirmyndar og stefnum við að frekari vexti á svæðinu á komandi árum”, segir Björn.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga