Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. september 2021 - kl. 14:36
Skoðanakönnun um sameiningarviðræður Skagabyggðar og Skagastrandar

Sveitarstjórnir Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa ákveðið að kanna hug íbúa til þess hvort hefja skuli sameiningarviðræður. Hafi íbúar áhuga á að sameiningarviðræður fari fram, er stefnt að því að kosið verði um sameiningu þeirra í byrjun árs 2022 með það fyrir augum að kosið yrði til nýrrar sveitarstjórnar í maí 2022. Áður en til þess kemur myndi fara fram almenn kynning og umræða eins og lög gera ráð fyrir við sameiningarviðræður. Þetta kemur fram á vef Skagastrandar

Þar er athygli vakin á því að íbúar geta sent sveitarstjórnum Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar spurningar á netfangið konnun@skagastrond.is og verður þeim spurningum svarað á vefsíðum sveitarfélaganna.

Markaðsrannsóknarfyrirtækið MMR mun annast skoðanakönnunina fyrir hönd sveitarfélaganna og fer hún fram í gegnum síma. Ráðgert er að hringingar vegna könnunar hefjist 22. september og verði lokið 1. október.

Kynningarrit má finna hér en það fer einnig í aldreifingu til allra heimila í Skagabyggð og á Skagaströnd sem og fyrirtækja.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga