Örkin. Mynd: feykir.is/Gunnar Rögnvaldsson
Örkin. Mynd: feykir.is/Gunnar Rögnvaldsson
Fréttir | 17. september 2021 - kl. 09:40
Örkin komin á safnið á Reykjum

Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði barst góður gripur í fyrradag þegar Örkin var sett niður á safnasvæðið. Um er að ræða bát í eigu Guðjóns Kristinssonar frá Dröngum en smíðaður af föður hans Kristni Jónssyni. Sagt er frá þessu á vef Feykis. Þar er haft eftir Gunnari Rögnvaldssyni, starfsmanni safnsins, að báturinn hafi verið smíðaður í fjárhúsunum á Seljanesi og tilbúinn árið 1981.

„Hér er um mjög merkilegan bát að ræða en Örkin mun vera, samkvæmt bestu heimildum, síðasti báturinn sem smíðaður var úr rekavið. Örkin var síðast gerð út á handfæri og reyndist gott og farsælt sjóskip. Guðjón hefur lánað safninu bátinn og mun Örkin ugglaust draga að sér athygli vegfarenda og gesta safnsins,“ segir Gunnar á vef Feykis. Benjamín safnvörður tók vel á móti Örkinni enda gjörkunnugur hverju borði og saum í handaverki föður hans.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga