Anton hnitsetjari. Mynd: ssnv.is
Anton hnitsetjari. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 20. september 2021 - kl. 14:08
Gönguleiðir á stafrænu formi nálgast 100

Alls hafa 94 gönguleiðir á Norðurlandi vestra verið hnitsettar og skráðar stafrænt og er hægt að finna þær á vefsíðunni Wikiloc. Þá eru leiðirnar einnig aðgengilegar á yfirlitskorti á vefsjá Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Verkefnið hófst í fyrrasumar en þá voru um 30 gönguleiðir skráðar og í sumar hafa rúmlega 60 leiðir bæst við. Verkefnið var skilgreint eitt af átaksverkefnum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og sem slíkt fjármagnað með sérframlagi stjórnvalda í gegnum Uppbyggingasjóð Sóknaráætlunar Norðurlands vestra.

Á vef SSNV kemur fram að hýsing þessara grunngagna, þ.e. GPS-punktar, myndir og textar, er aðallega hugsað til að leiðirnar verði aðgengilegar almenningi, en auk fyrirhugaðra upplýsingahluta um gönguleiðir á nýuppgerðri vefsíðu Markaðsstofu Norðurlands hefur Ferðamálastofa einnig hrint af stað verkefni þar sem flestallar gönguleiðir landsins eiga að vera undir. Einnig er í skoðun að gönguleiðirnar verði aðgengilegar hjá fleiri erlendum efnisveitum, sem sérhæfa sig í framsetningu og miðlun efnis til áskrifenda sinna. Fyrirhugað er að skiltamerkingar við upphafspunkt leiðanna sýni QR-kóða, sem fólk getur nýtt til að hlaða leiðirnar upp í síma sína.

Á vef SSNV kemur líka fram að Anton Scheel Birgisson hefur haft umsjón með hnitsetningunum í sumar og að hann hafi lagt að baki um 350 kílómetra við verkefni. Verkefnið hefur einnig notið velvildar gönguhópa á svæðinu bæði í Skagafirði og á Blönduósi, sem og sveitarfélaga sem hafa lagt til leiðir sem hnitsettar höfðu verið á þeirra vegum.

Tengd frétt:
Yfir 100 gönguleiðir komnar á blað

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga