Fréttir | 20. september 2021 - kl. 15:15
Bók um þróun byggðar á Hvammstanga

Út er komin bókin Hús og híbýli á Hvammstanga: Húsaskrá 1989-1972 eftir Þórð Skúlason. Í bókinni rekur Þórður þróun byggðar á Hvammstanga frá 1898 til 1972. Þórður er gjörkunnugur byggð og mannlífi á þessum gamla verslunarstað, enda borinn þar og barnfæddur. Hann hefur víða leitað fanga, bæði í opinberum gögnum og óbirtum heimildum, en þó ekki síst með samtölum við eldri og yngri Hvammstangabúa.

Í bókinni er rakin saga um 180 húsa á Hvammstanga, húsa sem enn standa og einnig þeirra sem hafa horfið af sjónarsviðinu í tímans rás. Sagan er krydduð með kátlegum mannlýsingum og fróðlegum lýsingum á mannlífi fyrri tíðar á Hvammstanga. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af húsum og umhverfi, bæði gömlum og nýjum.

Þórður Skúlason er fæddur á Hvammstanga árið 1943. Hann bjó og starfaði á Hvammstanga í 47 ár, sat í hreppsnefnd Hvammstangahrepps og gegndi starfi sveitarstjóra hreppsins í samtals 20 ár. Á búsetuárum sínum á Hvammstanga öðlaðist hann yfirgripsmikla og milliliðalausa þekkingu á sögu og þróun byggðar á Hvammstanga. Þórður hefur ritað fjölmargar greinar í blöð og tímarit, fyrst og fremst um sveitarstjórnarmál, en einnig um söguleg efni sem tengjast Hvammstanga. Ýmislegt hefur hann ritað um sögu staðarins og héraðsins sem ekki hefur birst á prenti. Árið 2013 kom út þýðing hans á skáldsögunni Heimsins besti bær eftir finnska rithöfundinn Arto Paasilinna.

Bók Þórðar er hægt að kaupa á heimasíðu Skriðu www.skridabokautgafa.is, í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og í Bardúsu á Hvammstanga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga