Úrslit í Norðvesturkjördæmi. Mynd: ruv.is
Úrslit í Norðvesturkjördæmi. Mynd: ruv.is
Fréttir | 26. september 2021 - kl. 08:38
Úrslit kosninganna í Norðvesturkjördæmi

Talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninganna lauk laust eftir klukkan sjö í morgun. Talin voru 17.666 atkvæði, 394 skiluðu auðu og ógildir kjörseðlar voru 24. Kjörsókn var 82%. Úrslit urðu þau að Framsóknarflokkurinn fær þrjá þingmenn og bætir við sig einu þingmanni frá síðustu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn fær tvo þingmenn og stendur í stað milli kosninga. Vinstri græn fá einn þingmann sem er sama niðurstaða og síðast og Flokkur fólksins fær einn þingmann en flokkurinn var ekki með þingmann eftir síðust kosningar 2017.

Viðreisn fær uppbótaþingmann eins og staðan er á landinu öllu núna en árið 2017 var enginn þingmaður frá flokknum í kjördæminu. Miðflokkurinn og Samfylkingin tapa mestu fylgi milli kosninga og missa sína þingmenn. Miðflokkurinn tapar mest en flokkurinn fékk tvo þingmenn í síðustu kosningum. Samfylkingin tapar einnig sínum þingmanni.

Úrslit í Norðvesturkjördæmi:

Framsóknarflokkur 4.443 atkvæði eða 25,7% og þrír menn kjörnir.
Sjálfstæðisflokkur 3.887 atkvæði eða 22,5% og tveir menn kjörnir.
Vinstri græn 1.979 atkvæði eða 11,5% og einn mann kjörinn.
Flokkur fólksins 1.513 atkvæði eða 8,7% og einn mann kjörinn.
Miðflokkurinn 1.283 atkvæði eða 7,4% og nær ekki inn þingmanni.
Samfylkingin 1.196 atkvæði eða 6,9% og nær ekki inn þingmanni.
Píratar 1.082 atkvæði eða 6,2% og ná ekki inn þingmanni.
Viðreisn 1.072 atkvæði eða 6,2% og fær einn mann kjörinn (jöfnunarsæti).
Sósíalistaflokkurinn 721 atkvæði eða 4,2% og nær ekki inn þingmanni.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn 72 atkvæði eða 0,4% og nær ekki inn þingmanni.

Samkvæmt þessu eru þingmenn kjördæmisins eftirfarandi:

Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokki.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Framsóknarflokki.
Bjarni Jónsson Vinstri grænum.
Haraldur Benediktsson, Sjálfstæðisflokki.
Eyjólfur Ármannsson, Flokki fólksins.
Halla Signý Kristjánsdóttir, Framsóknarflokki.
Guðmundur Gunnarsson, Viðreisn.

Ríkisstjórnin hélt velli og rúmlega það og átta flokkar náðu kjöri af tíu sem buðu fram í öllum kjördæmum. Eins og staðan er núna er ríkisstjórnin með 38 þingmenn. Lokatölur hafa enn ekki verið birtar. Framsóknarflokkurinn telst vera sigurvegari kosninganna og Flokkur fólksins kom mest á óvart.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga