Fréttir | 13. október 2021 - kl. 11:20
Körfuboltadagur á Blönduósi

Körfuknattleikssamband Íslands heldur körfuboltadag í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 16. október. Haldið verður námskeið með æfingum og farið í leiki með það að markmiði að kynna körfuboltaíþróttina fyrir krökkum á Blönduósi og úr nærsveitum. Námskeiðið verður tvískipt en fyrrihluti þess er leikjanámskeið sem verður frá klukkan 13-14 og svo loks körfuboltaæfing klukkan 14-16.

Sævaldur Bjarnason, þjálfari 18 ára landsliðs kvenna og margreyndur þjálfari bæði í yngri flokkum og meistaraflokki mun stjórna deginum og vonast hann og KKÍ til þess að allir krakkar á svæðinu kíki í heimsókn og taki þátt í deginum sem er öllum að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá sig heldur bara að mæta.

Úr auglýsingu KKÍ:

Leikjanámskeið klukkan 13-14
Leikjanámskeiðið er fyrir krakka í 1.-4. bekk og verður körfuboltinn hafður í forgrunni í bland við fjölbreytta og skemmtilega leiki. Gleði og jákvæðni eru ein af einkunnarorðum okkar og markmiðið með leikjanámskeiðunum er að kynna körfuboltann fyrir krökkunum á svæðinu, spila, fara í ýmsa skemmtilega leiki of hafa gaman.

Körfuboltaæfingar klukkan 14-16
Æfingin er fyrir alla krakka í 5.-10. bekk en á þessum æfingum verður lögð áhersla á að kynna körfubolta í gegnum einstaklingsmiðaðar æfingar eins og sóknarhreyfingar, dripl, skot og sendingar sem miða að því að bæta tækni og auðvitað verða spilaðir leikir í bland við fjölbreyttar æfingar og fjör.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga