Fréttir | 04. október 2021 - kl. 11:17
Hefur þú áhuga á að virkja lækinn þinn?

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa eftir umsóknum í Smávirkjanasjóð SSNV sem stofnaður var árið 2018. Tilgangur hans er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Sjóðurinn veitir styrki til annars vegar: Skref 1: Frummat smávirkjana og hins vegar: Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummat hönnunar og byggingarkostnaðar.

Að þessu sinni verður úthlutað úr Skrefi 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummat hönnunar og byggingarkostnaðar

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021. 

Öll gögn varðandi umsóknarferlið er að finna hér.

Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, unnur@ssnv.is, s. 419-4550.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga