Austé Jurgelionyte-Varné
Austé Jurgelionyte-Varné
Tilkynningar | 04. október 2021 - kl. 11:30
Námskeið í Kvennaskólanum

Miðvikudaginn 6. október klukkan 17:00 - 19:00 er námskeið í boði á vegum Ós Textíllistamiðstöðvarinnar í Kvennaskólanum á Blönduósi fyrir börn og fullorðna. Austé Jurgelionyte-Varné er listamaður frá Litháen og styrkhafi okkar í Nordic-Baltic verkefninu. Hún mun sýna nokkrar aðferðir við að prenta jurtir á ýmis konar efni s.s. margnota poka, lampa og koddaver. Ef veður leyfir munum við kíkja út í náttúruna og tína plöntur 🌿 🍁 

Svo setjum við upp smá sýningu að námskeiðinu loknu.

Námskeið er ókeypis en áhugasamir (13 max.) eru beðnir um að skrá sig: residency@textilecenter.is eða í síma 8999271 (Katharina).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga