Fréttir | 05. október 2021 - kl. 14:07
COVID-19 takmarkanir innanlands framlengdar til 20. október

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja gildandi sóttvarnaráðstafanir innanlands vegna faraldurs Covid-19 til 20. október næstkomandi. Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er þróun faraldursins rakin frá því að öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum hér á landi var aflétt 26. júní síðastliðinn og slakað á sýnatökum hjá farþegum á landamærunum.

Sóttvarnalæknir bendir á að þessar tilslakanir hafi verið gerðar í ljósi þess að smit innanlands voru fátíð og um 70% þjóðarinnar fullbólusett. Tveimur til þremur vikum eftir afléttingu sóttvarnaaðgerða hafi smitum innanlands tekið að fjölga, fjölgun hafi orðið á innlögnum á Landspítala og alvarleg veikindi aukist. Í þessari bylgju hafi smit og alvarleg veikindi verið algengari en áður hjá óbólusettum börnum og tvö alvarlega veik börn lagst inn á sjúkrahús.

Eins og fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis leggur hann til að óbreyttar takmarkanir innanlands verði framlengdar í a.m.k. einn mánuð. Ráðherra fellst á framlengingu en telur rétt að sú ákvörðun verði endurskoðuð eftir hálfan mánuð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga