Tilkynningar | 05. október 2021 - kl. 15:34
Breyttur afgreiðslutími á Heilsugæslunni á Blönduósi
Tilkynning frá HSN

Frá og með 15. október 2021 lokar afgreiðsla heilsugæslunnar á Blönduósi kl. 12:00 á föstudögum. Þetta er gert vegna skipulagsbreytinga. Eins og áður er hringt í síma 1700 til að ná í vaktlækni utan opnunartíma.

Frá sama tíma styttist tími lyfjaendurnýjunar og verður 13:00-13:30 alla virka daga. Minnum á að hægt er að endurnýja lyf á heilsuvera.is

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga