Fréttir | 06. október 2021 - kl. 09:32
Tíunda hvert barn á landsbyggðinni með offitu

Í fréttaskýringaþættinum Kveik í Ríkissjónvarpinu í gær var fjallað um offitu barna. Þar kom fram að á sumum svæðum á landsbyggðinni er offita barna tvöfalt algengari en á höfuðborgarsvæðinu. Á höfuðborgarsvæðinu er tæplega fjórðungur yfir kjörþyngd, þar af um 5,5 prósent með offitu. Utan höfuðborgarsvæðis er hlutfall barna yfir kjörþyngd að nálgast þriðjung og offita er á sumum svæðum tvöfalt algengari en á höfuðborgarsvæðinu. Að meðaltali glímir nær tíunda hvert barn utan höfuðborgarsvæðis við offitu, að því er fram kemur í Kveik.

Rætt er við barnalækninn Tryggva Helgason en hann er sérfræðingur í offitu barna. Tryggvi segir ekki einfalt að skýra þennan mun milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggða. Nefni hann að sums staðar sé verra aðgengi að ferskvöru og minna úrval af hreyfingu fyrir börn. Einnig nefnir hann að sum staðar sé líka lægra menntunarstig og meiri fátækt á landsbyggðinni. Og að allt séu þetta þættir sem, sérstaklega úti í heimi, sé búið að staðfesta vel að hafi áhrif.

Tryggvi segir þörf á mun markvissari aðgerðum til að sporna gegn fjölgun barna með offitu en beitt hefur verið hingað til. Einnig er rætt við Ásu Sjöfn Lórensdóttur, fagstjóri hjá heilsuvernd skólabarna, en hún segir vandann fyrst og fremst samfélagslega áskorun. Það sé í hönum samfélagsins að styðja við og efla heilsu allra, þar á meðal barna. „Við vitum til dæmis að félagslegur ójöfnuður getur haft áhrif á þróun þessa heilsuvanda. Og börn hafa mismunandi aðgengi að heilbrigðum lífsvenjum. Það eru margar lýðheilsuaðgerðir sem hægt er að ráðast í til að efla heilsu. Og ég vil sjá þetta svolítið áþreifanlegra,“ segir Ása í þættinum.

Lesa má nánar um þetta mál á vefsíðu Kveiks.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga