Jafnlaunavottun sveitarfélaganna átti
að vera lokið
árið 2019. Skjáskot úr Fréttablaðinu.
Jafnlaunavottun sveitarfélaganna átti að vera lokið árið 2019. Skjáskot úr Fréttablaðinu.
Fréttir | 09. október 2021 - kl. 10:35
Gætu fengið sekt vegna jafnlaunavottunar

Blönduósbær og sveitarfélögin Skagaströnd og Húnaþing vestra eru á meðal 16 sveitarfélaga sem ekki hafa fengið jafnlaunavottun og eiga á hættu að verða beitt dagsektum um áramót. Hafa þau trassað að klára ferlið sem þau áttu að ljúka fyrir tveimur árum síðan. Bæði Jafnréttisstofa og forsætisráðuneytið hafa þrýst á Samband íslenskra sveitarfélaga að ljúka málinu, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.

Þar er rætt við Katrínu Björgu Ríkarðsdóttur sem er framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Hún segir að Jafnréttisstofa hafi heimildir til þess að beita dagsektum og muni gera það ef ekkert gangi. Hún segir jafnframt að Jafnréttisstofa sé meðvituðu um að gæta þurfi meðalhófs þegar komið að íþyngjandi ákvörðunum og að um áramótin verði staðan skoðuð alvarlega með tillitil til hvort dagsektarheimildinni verði beitt.

Sveitarfélögin 16 eru af öllum stærðum og gerðum, víðs vegar á landinu. Þar á meðal tvö af þeim fjölmennari, Kópavogsbær og Akureyrarbær. Einnig má nefna Stykkishólmsbæ, Snæfellsbæ, Rangárþing ytra og eystra og Bolungarvíkurkaupstað.

Hafa beri í huga að ekki öll sveitarfélög falli undir löggjöfina, aðeins þau sem hafi 25 starfsmenn eða fleiri. Eru því þau 18 fámennustu undanþegin. Katrín segir í samtali við Fréttablaðið engin dæmi um að sveitarfélög einfaldlega neiti að framfylgja lögunum eða sinni því ekkert að útvega vottunina. Þau séu hins vegar mislangt komin í ferlinu og henni finnst ganga óþarf lega hægt hjá sumum þeirra.

Sjá ítarlegri umfjöllun um málið í Fréttablaðinu í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga